Sport

Landsliðið í snóker valið

A-landslið Íslands í snóker hefur verið valið fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram á Möltu í mars. Liðið skipa Jóhannes B. Jóhannesson, Brynjar Valdimarssonog Gunnar Hreiðarsson, en sá síðastnefndi hefur oftast leikið með B-landsliðinu en hefur nú tryggt sér sæti í A-liðinu. Íslenska liðið hefur einu sinni unnið Evrópumeistaramótið, en sá árangur náðist í febrúar árið 2002 þegar mótið fór fram hér á landi. Þá var Kristján Helgason í liðinu ásamt þeim Jóhannesi og Brynjari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×