Spennandi að vera kominn heim 25. janúar 2005 00:01
Tryggvi Guðmundsson er kominn heim til Íslands eftir að hafa verið atvinnumaður erlendis í sjö ár. Hann hefur nú gengið til liðs við Íslandsmeistara FH, sem hafa styrkt lið sitt mikið og ætla sér stóra hluti í sumar. Tryggvi skrifaði í gær undir þriggja ára samning við hafnfirska liðið og segist sáttur við að vera kominn heim. Tryggvi segir spennandi að vera kominn heim á ný og kveðst alltaf hafa stefnt á að koma aftur til Íslands, þó hann sé að koma fyrr en hann ætlaði sér í fyrstu. "Það er betra að koma heim núna og geta sýnt hvað í mér býr í stað þess að vera kannski að koma hérna eftir fjögur eða fimm ár þegar maður er kominn á bremsuna og getur ekki neitt," sagði Tryggvi léttur í bragði. Nokkur lið höfðu sýnt kappanum áhuga og gert honum tilboð áður en hann ákvað að ganga til liðs við FH-inga og sagði hann nokkur þeirra hafa verið áhugaverð. "Mér bárust svo sem nokkur ágætis tilboð, nokkur þeirra kannski dálítið vafasöm og frá hinum furðulegustu löndum um alla Evrópu. Þegar upp er staðið var þetta ekki spurning um peninga hjá mér heldur meira um fótbolta," segir Tryggvi um komu sína í Hafnarfjörðinn. Hann játar því að önnur félög á Íslandi hafi haft samband við sig en segir ýmsa þætti hafa ráðið því að hann valdi FH. "Leikmenn með metnað vilja náttúrlega fara í bestu liðin og ég tel FH vera með besta liðið. Ég hef líka sterkar taugar til félagsins því að faðir minn er búinn að vera hérna hjá FH-liðinu síðan ég man eftir mér og systkini mín æfa hjá félaginu, þannig að þetta var í rauninni aldrei spurning fyrir mig." Þegar við spurðum Tryggva hvernig hann sæi möguleika nýja félagsins á næsta keppnistímabili var hann bjartsýnn: "Eins og ég sagði tel ég að FH hljóti að vera með besta liðið og ekki skemmir það að við Auðun Helgason skulum vera komnir hingað, ekki bara með reynslu heldur líka einhverja hæfileika. Ég hef því enga trú á öðru en að við verðum í toppbaráttunni hér heima og svo er stefnan auðvitað sett á góðan árangur í Evrópukeppninni," sagði Tryggvi, sem neitar alfarið að tjá sig um viðræður sínar við Stoke City um að fara þangað sem lánsmaður fram á vor. "Núna var ég að skrifa undir samning við FH og er samningsbundinn félaginu til þriggja ára svo að ég vil ekkert ræða um önnur félög á þessari stundu. Það er mikið búið að tala um þetta mál í fjölmiðlum, en ég reyni bara að segja sem minnst. Ef eitthvað gerist í þessum málum - þá bara gerist það".
Íslenski boltinn Mest lesið Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Sport Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Aurier í bann vegna lifrarbólgu Fótbolti Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Fótbolti Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Handbolti „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Fleiri fréttir Í beinni: Manchester City - Tottenham | Alvöru próf fyrir gestina Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum Dagskráin í dag: Enski boltinn á sviðið „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Tap í síðasta leik fyrir EM Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Sjá meira