Chelsea að stinga af? 16. janúar 2005 00:01
Það var fyrirliðinn Frank Lampard sem tryggði Chelsea sigurinn gegn Tottenham í slag Lundúnaliðanna á laugardaginn var. Hann skoraði bæði mörkin í tilþrifalitlum leik á White Hart Lane, hið fyrra úr nokkuð umdeildri vítaspyrnu eftir meint brot á Alexei Smertin undir lok fyrri hálfleiks. Leikurinn var nokkuð jafn lengst af, en það var svo Lampard sem gerði út um hann undir lokin þegar hann skoraði síðara mark sitt eftir góðan undirbúning Eiðs Smára Guðjohnsen sem kom inn á seint í leiknum. Chelsea hefur notið meðbyrs undanfarið og hefur komið vel út úr vafaatriðum í leikjum sínum að undanförnu. Meistaraheppnin svokallaða virðist vera að falla liðinu í skaut og lét Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafa eftir sér að Chelsea væri komið með afar vænlega stöðu í toppbaráttunni. "Það lítur ekki út fyrir að þeir tapi mörgum stigum eins og liðið leikur í dag og þó talsvert sé eftir að deildarkeppninni er þær komnir í vænlega stöðu. Arsenal tapaði mikilvægum stigum um helgina þegar liðið tapaði fyrir Bolton á útivelli og mun eflaust setja strik í reikninginn þegar lengra dregur. Lið Manchester United hefur verið á miklu skriði undanfarið og virðist hvergi ætla að gefa eftir. Liðið sótti heim fjendur sína í Liverpool og var það undrabarnið Wayne Rooney sem skoraði eina mark leiksins eftir slæm mistök markvarðar Liverpool. Voru það ekki fyrstu mistök Jerzy Dudeks á leiktíðinni og ekki fyrstu mistök hans sem kosta liðið stig. Er þetta í annað sinn á þremur árum sem United hefur sigur á Anfield. Gestirnir misstu reyndar Wes Brown af velli með rautt spjald, eftir slæma tæklingu á John Arne Riise, en náðu engu að síður að halda fengnum hlut og hirða stigin þrjú.United sækir nú fast á hæla Arsenal í baráttunni um annað sætið en munurinn á liðunum er aðeins eitt stig.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira