Innlent

Verlækkanir hafa að mestu gengið tilbaka

Lækkanir á verði matvæla frá því í verðstríði stórmarkaðanna í vetur og vor, hafa nú að miklu leyti gengið til baka. Verð í ódýrustu verslununum hækkar mest.

Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði netútgáfu Vinnunar, sem Alþýðusambandið gefur út. Frá áramóttum hefur sambandið gert ítarlegar verðkannanir í matvöruverslunum og fylgst með verðþróun. Verðstríðið hófst í ársbyrjun, -og stóð var einkum á millii Bónuss og Kórnunnar. AS'I bendir á að verð á mjólk hafi lækkað um helming frá febrúar til maí, og verð á öðrum mjólkurvörum um 20 til 30 %. Hámarki náði líklega verðstríðið þegar mjólkurlítrinn fór úr einni krónu í að verða ókeypis.

En grænmeti, brauð og ávextir lækkuðu líka mikið -oft um 40 til 50% samkvæmt könnunum ASÍ.

Í heildina lækkaði viðmiðunnar matarkarfan um tæp 25% í Bónussi en um tæp 30% prósnet í Krónunni, frá febrúar fram í október.

Kjöt og fiskur lækkaði ekki á sama hátt, kjötið hefur reyndar hækkað töluvert síðustu mánuði, en í heildina tekið, hefur matarverð lækkað um tvö og hálft prósent það sem af er ári að mati Hagstofu Íslands.

En nú eru hækkanirnar farnar að ganga til baka segir Alþýðusambandið. Lágvöruverðsvöruverslanirnar sem mest lækkuðu hafa hækkað hjá sér, en hinir sem ekki tóku þátt í verðstríðinu í vetur og vor hefur hins vegar aðeins verið að lækka hjá sér verðið í sumar.

En þrátt fyrir allt er verðið ennþá lang lægst í lávöruverðsverslunumum, Krónunni og Bónus.

 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×