Innlent

Volvo og Atlas grunuð um mútur

Paul Volcer, formaður rannsóknarnefndar, Olía fyrir mat.
Paul Volcer, formaður rannsóknarnefndar, Olía fyrir mat. MYND/AP

Sænsku fyrirtækin Volvo og Atlas Copco og tuttugu og eitt danskt fyrirtæki, eru í hópi 2,400 fyrirtækja í 66 löndum, sem grunuð eru um mútustarfsemi í olíuviðskiptunum við Íraka. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um áætlunina Olía fyrir mat.

Samkvæmt skýrslunni fékk írakska ríkið að velja hverjum það seldi olíu og af hverjum það keypti vörur. Til þess að ná samningum, greiddu fyritækin það sem kallað var aukakostnaður og nam tíu prósentum af samningnum. Múturnar runnu beint í vasa Saddams Hussein og undirmanna hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×