Búist við að velta í verslun aukist um þriðjung milli ára 23. desember 2005 15:02 MYND/Teitur
Kaupmenn búast við að veltan í jólamánuðinum aukist um þriðjung að meðaltali á milli ára. Aukinn kaupmáttur er sagður aðalástæða þess. Lausleg og óformleg könnun fréttastofu NFS leiðir hins vegar í ljós að flestir eru á svipuðu róli og í fyrra. Íslendingar kaupa vörur sem aldrei fyrr fyrir jólin ef marka má orð kaupmanna. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna,segist út frá samtölum sínum við kaupmenn búast við því að veltan aukist um 30 prósent að meðaltali, misjafnlega þó í einstökum greinum.Hann segir raftæki mjög vinsælk hjá landanum nú og velta hafi aukist um allt að 50 prósent hjá sumum verslunum á milli ára, En hver ætli sé ástæðan fyrir þessu? Andrés segir að kaupmáttur í landinu hafi aldrei verið meiri og það sé almenn velsæld. Þetta enduspeglist í góðum jólum fyrir íslenska verslunarmenn. Það er sama hvert litið er, í Kringluna, Smáralind eða miðbæinn, alls staðar finna menn fyrir aukinni veltu miðað við jólamánuðinn í fyrra. Í Kringlunni er búist við á bilinu 10-15 prósenta veltuaukningu að meðaltali, um 20 prósentum í Smáralind og í miðbænum merkja menn talsvert meiri verslun en í fyrra. Þá búast forsvarsmenn Kringlunnar og Smáralindar við að um þriðjungur þjóðarinnar leggi leið sína á annan hvorn staðinn í dag, um fimmtíu þúsund í hvora verslunarmiðstöð. Fréttastofa NFS tók nokkra vegfarendur tali í Kringlunni og þeir sögðust flestir vera á svipuðu róli í eyðslu og í fyrra. Flestir töldu þeir þó almennt að neyslan hefði aukist milli ára.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu viðbragðsáætlun vegna flugslyss Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira