Vilja ræða við ráðherra um breytingar á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp 23. desember 2005 14:50 MYND/Teitur
Þrír þingmenn Norðvesturkjördæmis hafa óskað eftir því við Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að kallaður verði saman fundur þingmanna kjördæmisins með heimamönnum og forsvarsmönnum Íslandspósts vegna breytinga á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp sem taka eiga gildi um áramótin. Þingmennirnir, sem eru Jóhann Ársælsson, Jón Bjarnason og Sigurjón Þórðarson, segja breytingarnar hafa komið mjög flatt upp á heimamenn. Í bréfinu sem sent var samgönguráðherra segir: Vakin er athygli á því að Íslandspóstur hf hefur boðað grundvallarbreytingar á póstþjónustu við Ísafjarðardjúp, og ef til vill víðar á Vestfjörðum, sem gert er ráð fyrir að taki gildi frá og með næstu áramótum. Landpósturinn hefur gengt fjölþættu þjónustuhlutverki við íbúana í Ísafjarðardjúpi en nú á að skera af þessa þjónustu samkvæmt yfirlýsingum forstöðumanna Íslandspósts hf. Einnig virðist ætlunin að skilja póst Djúpmanna eftir í gámi vörslulausan á víðavangi. Breytingarnar hafa komið mjög flatt upp á heimamenn enda hafa þeir mótmælt þeim kröftuglega. Í því sambandi er vert að minna á að engar almenningssamgöngur eru að vetrarlagi við Ísafjarðardjúp. Í ljósi ofanritaðs óskum við undirritaðir þingmenn Norðvesturkjördæmis eftir að kallaður verði saman fundur þingmanna kjördæmisins með heimamönnum og forsvarsmönnum Íslandspósts svo fljótt sem verða má. Á fundinum verði farið yfir stöðuna og rætt hvernig best megi standa að sem víðtækastri almannaþjónustu við íbúana á svæðinu. Þjónusta landpóstanna er þar mikilvægur þáttur. Jafnframt óskum við eftir að breytingum á skipan póstmála á þessu svæði verði slegið á frest uns fundin er leið sem hentar íbúunum best og full sátt verður um. Virðingarfyllst, Jóhann Ársælsson, Jón Bjarnason og Sigurjón Þórðarson
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira