Sport

Jafnt hjá Slóvökum og Portúgölum

Slóvakar og Portúgalar gerðu 1-1 jafntefli í 3. riðli undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í kvöld. Miroslav Karhan kom Slóvökum yfir strax á áttundu mínútu með marki úr vítaspyrnu en Helder Postiga jafnaði um miðjan síðari hálfleik. Portúgalir og Slóvakar eru efstir í riðlinum með 14 stig, en Rússar, sem í dag gerðu 1-1 jafntefli gegn Eistum, hafa 11 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×