Úrslitin í HM-leikjunum 27. mars 2005 00:01
Svíar lögðu Búlgara, 3-0, á útivelli í 8. riðli, riðli okkar Íslendinga, í undankeppni HM í gær. Svíar eru á toppnum með 12 stig, Króatar verma annað sætið í riðlinum með 10 stig, Búlgaría í þriðja sæti með 7 stig , Ungverjaland í fjórða sæti með 6 stig og Ísland og Malta reka lestina með 1 stig. Eins og kunnugt er biðu Íslendingar lægri hlut fyrir Króötum, 4-0, í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Zagreb í gær. Íslendingar áttu aldrei möguleika í leiknum og var leikur íslenska liðsins langt frá því að vera sannfærandi. Nico Kovanc skoraði tvö mörk og þeir Simunic og Dado Praso hvor sitt markið fyrir Króatíu. Hollendingar eru efstir í 1. riðli með 13 stig eftir 2-0 sigur á Rúmenum. Tékkar, sem lögðu Finna, 4-3, eru í öðru sæti með 12 stig. Danir sigruðu Kazakhstan, 3-0, á Parken í 2. riðli og eru í þriðja sæti með 9 stig. Úkraínumenn eru á toppnum með 14 stig, Grikkir, sem lögðu Georgíumenn, í öðru sæti með 11 stig og Tyrkir í fjórða sæti með 9 stig eftir 2-0 sigur á Albaníu. Portúgal og Slóvakía eru á toppnum í 3. riðli með 13 stig. Slóvakar lögðu Eistlendinga, 2-1, á útivelli. Rússar, sem sigruðu Liechtenstein 2-1, eru í þriðja sæti með 10 stig. Frakkar og Svisslendingar gerðu markalaust jafntefli í 4. riðli og Ísrael og Írland gerðu jafntefli, 1-1. Írar, Frakkar og Ísraelsmenn eru efstir í riðlinum með 9 stig. Í 5. riðli eru Ítalir í efsta sæti með 12 stig eftir 2-0 sigur á Skotum en Íslendingar mæta Ítölum í vináttulandsleik í Padova á miðvikudag. Englendingar burstuðu Norður-Íra, 4-0, í 6. riðli og eru efstir með 13 stig. Pólverjar, sem lögðu Asera 8-0, eru í öðru sæti með 12 stig. Í 7. riðli eru Serbar og Svartfellingar efstir með 12 stig en Belgar, sem lögðu Bosníumenn 4-1, eru í 4. sæti með fjögur stig, fjórum stigum á eftir Spánverjum og Litháum sem hafa 8 stig í þriðja til fjórða sæti.
Íþróttir Mest lesið Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Hvolfdu kamri, skölluðu Víking og voru piparúðaðir út Fótbolti Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Íslenski boltinn „Algjörlega óásættanlegt“ og stuðningsmennirnir verða settir í bann Fótbolti „Eigum von á því að fá þetta tjón að fullu bætt“ Fótbolti Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enski boltinn Sjáðu mörkin sem gerðu stuðningsmenn Bröndby alveg bandbrjálaða Fótbolti Framkvæmdastjórinn fær frí til að vera kylfusveinn Golf Þýsk fótboltagoðsögn dæmd í fangelsi Fótbolti Fleiri fréttir Þór lagði Fylki og þjarma að toppliðunum í Lengjudeildinni Leik lokið: Þróttur - Víkingur 2-1 | Heimakonur unnu Reykjavíkurslaginn Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Axel leiðir að öðrum degi loknum Hulda Clara ein á toppnum eftir dag númer tvö á Íslandsmótinu í golfi Jón Daði í hóp hjá Selfossi í fyrsta sinn í sumar Hlynur sigurvegari á Forsbacka Open í Svíþjóð Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United „Pele Palestínu“ drepinn á Gaza-ströndinni „Eigum von á því að fá þetta tjón að fullu bætt“ Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Norska sambandið vill banna fótboltaleiki innanhúss Framkvæmdastjórinn fær frí til að vera kylfusveinn Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Galdur orðinn leikmaður KR Eir hljóp inn í undanúrslitin „Algjörlega óásættanlegt“ og stuðningsmennirnir verða settir í bann Fyrsta mamman til að verða númer eitt í heiminum Samdi við kríuna um að koma sér á brott Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Röddin við það að brotna í hjartnæmri ræðu Cloé Eyju Sjáðu mörkin sem gerðu stuðningsmenn Bröndby alveg bandbrjálaða Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Hvolfdu kamri, skölluðu Víking og voru piparúðaðir út NBA stjarna borin út Myndaveisla af ótrúlegum sigri Víkinga Þýsk fótboltagoðsögn dæmd í fangelsi Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur, Íslendingar í Birmingham og margt fleira Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fyrirliðabandið tímabundið tekið af Ter Stegen Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti