Kalla á stórherferð gegn alnæmi 4. mars 2005 00:01
Níutíu milljónir Afríkubúa, eða tíu prósent álfunnar, gætu sýkst af alnæmisveirunni á næstu tuttugu árum ef ekkert verður að gert. Sameinuðu þjóðirnar vilja stórherferð í álfunni og 200 milljarða dollara til að berjast gegn sjúkdómnum. 25 milljónir manna í Afríku eru sýktar af alnæmisveirunni og er alnæmi algengasta dánarorsök fólks í Afríku og fjórða algengasta dánarorsökin í heiminum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur farið hörðum orðum um viljaleysi þjóðarleiðtoga og voldugustu manna alþjóðasamfélagsins til að berjast gegn sjúkdómnum og gagnrýnir ráðamenn sem horfa aðgerðarlausir á milljónir alnæmissjúklinga í fátækum ríkjum deyja úr sjúkdómnum einungis vegna skorts á læknis- og lyfjameðferð, sem þó sé hægt að útvega. Nú er þremur milljörðum dollara varið á ári til fræðslu, lyfjagjafa og meðhöndlunar en samt eykst fjöldi þeirra sem sýkist stöðugt. Framkvæmdastjóri alnæmisáætlunar Sameinuðu þjóðanna, Peter Piot, segir í nýrri skýrslu um málið að ekkert dugi nema stórherferð til að stöðva þessa þróun. Þörf sé á 200 milljörðum bandaríkjadala eða 12 þúsund milljörðum íslenskra króna. Hann segir að líta verði á alnæmi sem alvarlegan heimsfaraldur sem gæti lagt heilu samfélögin í rúst. Með herferð og fjármagni væri jafnvel hægt að koma í veg fyrir að 16 milljónir í álfunni létust úr sjúkdómnum og að 43 milljónir manna smituðust af HIV-veirunni. Skýrslu Sameinuðu þjóðanna lýkur með þeim orðum að ef enn verði milljónir Afríkubúa sýktar af alnæmi eftir 20 ár sé það ekki vegna þess að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir það.
Erlent Fréttir Mest lesið Hættir á Spotify: „Ég er frjáls!“ Innlent „Mér brá við að sjá þessa tölu“ Innlent Karlmaður handtekinn í tengslum við mannslát Innlent Sonur Ölmu Möller íhugar framboð Innlent Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Innlent „Brast eitthvað innra með mér og ég sá að ekki var allt með felldu“ Innlent MAST búið að snúa hnífnum Innlent Þórunn biðst afsökunar: „Bara mannleg eins og annað fólk“ Innlent Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Veður Á fjórða tug barna drepin í drónaárás á leikskóla Erlent Fleiri fréttir Á fjórða tug barna drepin í drónaárás á leikskóla Hvelfingin um Tsjernobyl-verið stöðvar ekki kjarnorkugeislun Telja Evrópu traðka niður andóf gegn Úkraínustríðinu Ferðabannið útvíkkað frá tólf ríkjum í yfir þrjátíu Óþekktir drónar stefndu á vél Selenskí við Írland Vellinum í Edinborg lokað um stund og seinkanir mögulegar Norðmenn kaupa langdræg vopn og kafbáta fyrir milljarða Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Endurheimtu verðmætt hálsmenið úr þörmum þjófsins Óheimilt að skjóta niður ólöglega dróna nema af þeim stafi hætta Krefja Farage um heiðarleika og afsökunarbeiðni Færeyingar rýmka verulega lög um þungunarrof Annað hvort hörfi Úkraínumenn eða verði hraktir burt með valdi Handtóku sprengjumann eftir nærri því fimm ára leit Ógnaði öryggi hermanna með Signal-spjalli Vöruðu við því að Bandaríkin gætu svikið Úkraínu og Evrópu Telja Pútín siðferðislega ábyrgan fyrir dauða breskrar konu Dæmdur í fangelsi fyrir að selja Perry ketamín Leggja fram áætlun um haldlagningu frystra sjóða Rússa Braust inn í vínbúð og „drapst“ á klósettinu Birtu áður óséðar myndir af einkaeyju Epsteins Rússneskur geimfari sakaður um njósnir Náðar Demókrata sakaðan um mútuþægni Þorgerður mætt en söguleg fjarvera Rubio vekur furðu Lögregla vaktar hægðir meints skartgripaþjófs Stöðva afgreiðslu umsókna innflytjenda frá nítján ríkjum Hefja aftur leit að MH370 Vill alla Sómala á brott: „Landið ykkar er glatað og við viljum þá ekki í okkar landi“ Engin niðurstaða á annars „gagnlegum“ fundi Fyrrverandi forseti Hondúras laus eftir náðun Trumps Sjá meira