Sport

Móðgandi ásakanir, segir Barnett

Jonathan Barnett, umboðsmaður Ashley Cole hjá Arsenal, hefur þvertekið fyrir það að skjólstæðingur sinn hafi átt leynilegan fund með Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea. "Þessar ásakanir á hendur Cole eru ekki svaraverðar. Þær eru móðgandi," sagði Barnett. Samkvæmt fregnum frá Bretlandi áttu Cole og Mourinho að hafa hist á hóteli í London til að funda um hugsanlegan flutning til Chelsea-liðsins. Barnett harðneitaði að hafa sett á fót umræddan fund og ítrekaði að honum þætti ásakanirnar fáránlegar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×