Gaf leyfi til yfirflugs 25. janúar 2005 00:01
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær að íslensk stjórnvöld hefðu veitt Bandaríkjamönnum leyfi til yfirflugs og notkun Keflavíkurstöðvarinnar vegna vaxandi spennu í Írak þegar í febrúar 2003. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra eftir að Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, spurði hann um efni fréttar Stöðvar 2 um málið í gærkvöld. Össur vitnaði til orða Halldórs daginn fyrir innrásina um að öryggisráðið ætti að hafa síðasta orðið. "Þetta sagði hann þremur vikum eftir að hann sem utanríkisráðherra leyfði að flogið yrði um lofthelgi landsins og herflugvélar hefðu hér viðdvöl vegna innrásarinnar í Írak. Nú virðist mega draga þá ályktun að stuðningur Íslands hafi komið fram þremur vikum fyrr en áður var sagt." Halldór Ásgrímsson vísaði því á bug að með þessu hefði verið lýst yfir stuðningi við stríð í Írak og benti á að liðsflutningar til Persaflóa hefðu hafist löngu fyrir febrúar. Ísland hefði gefið leyfi til yfirflugs á svipuðum tíma og Þjóðverjar, sem hefðu gefið sitt leyfi jafnvel þótt þeir hefðu verið á móti innrásinni. "Við höfum aldrei hafnað beiðni bandamanna okkar um yfirflug en flutningarnir fóru að mjög litlu leyti um Keflavík". Til mjög hvassra orðaskipta kom á milli Halldórs og Össurar og var formaður Samfylkingarinnar sakaður um að nota ræðustól Alþingis í baráttu sinni fyrir endurkjöri til formanns. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði ástæðu til að ræða þetta mál daglega í þinginu þar til sannleikurinn hefði verið leiddur í ljós: "Listinn yfir hinar vígfúsu þjóðir hafði það að markmiði að grafa undan Sameinuðu þjóðunum og öryggisráðinu. Hann hefur stórpólitíska þýðingu og er stórpólitískt utanríkismál."
Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira