Ætlar ekki að fela sig í hringnum 17. mars 2005 00:01
Það verður flugeldasýning á Broadway í kvöld þegar Íslendingar og Bretar mætast í boxhringnum. Boðið verður upp á mat og boxsýningu fyrir þá sem vilja en einnig er hægt að mæta eingöngu á hnefaleikasýninguna sem jafnframt verður í beinni útsendingu á Sýn. Meðal þeirra sem keppa er Skúli "Tyson" Vilbergsson en stóri bardagi kvöldsins er á milli Þórðar "Doddy" Sævarssonar og breska meistarans, Michael Bailey. Skipuleggjendur lofa svakalegum bardaga enda er Þórður stærsta von Íslands í hnefaleikaheiminum og Bailey besti boxari sem hingað hefur komið síðan ólympískir hnefaleikar voru leyfðir á ný. "Þetta verður rosalega skemmtilegt og ég er orðinn mjög spenntur. Ég geri mér samt vel grein fyrir því hversu öflugur maður þetta er. Hann skal samt fá að vinna fyrir hlutunum. Ég er ekki að fljúga hingað frá Danmörku til þess að fela mig í hringnum og hlaupa undan honum. Ég hjóla bara beint í hann," sagði Þórður nýlentur frá Danmörku þar sem að hann vann silfurverðlaun á danska meistaramótinu. Þórður, sem er 27 ára, hefur æft hnefaleika í sex ár en byrjaði ekki að keppa reglulega fyrr en hann flutti út til Danmerkur seinni hluta síðasta árs. Í Danmörku passar Þórður börn á daginn og æfir síðan hnefaleika af fullum krafti á kvöldin. "Ég hef bætt mig mikið eftir að ég flutti út enda umhverfið allt annað en hér heima þótt ég sé ekki að gera lítið úr því góða starfi sem menn eru að vinna hér," sagði Þórður sem ætlar sér að sigra á næsta danska meistaramóti.
Íþróttir Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Líður eins og hann sé með geimskip á hausnum Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni „Hef hugsað um þetta síðan ég var þrettán ára“ Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Bað kærastann sinn afsökunar Dagskráin í dag: Besta, enski og Ofurbikarinn Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG „Þetta var bara út um allt“ Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sjá meira