Erlent

Sprengdu grunsamlega tösku

Belgíska lögreglan sprengdi í morgun upp skjalatösku sem fannst nærri Evrópuþinginu í Brussel. Öryggisverðir í nærliggjandi byggingu tilkynntu lögreglu um töskuna eftir að maður sem ekki var hleypt inn í bygginguna, vegna þess að hann gat ekki sýnt skilríki, skildi hana eftir. Lögreglan notaði fjarstýrt vélmenni til að sprengja töskuna. Lögreglumaður sem tók þátt í aðgerðinni sagði þó ólíklegt að sprengja hafi verið í töskunni - ef svo hefði verið, hefði hávaðinn við sprenginguna orðið miklu meiri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×