Innlent

Fá 50% meiri launahækkun en ófaglært verkafólk

MYND/NFS

Ráðherrar og þingmenn fá 50% meiri launahækkun en verkafólk á árinu. Laun forsætisráðherra hækka um rúm 10% frá janúar á þessu ári fram í janúar á næsta ári en laun ófaglærðs verkafólks hækka hins vegar um tæp 7% á sama tíma.

Í lögum um kjaradóm og kjaranefnd segir meðal annars: Við úrlausn mála skal kjaradómur gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim sem hann ákveður og að þau séu á hverjum tíma í samræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. Enn fremur skal kjaradómur taka tillit til þróunar kjaramála á vinnumarkaði. Margir hafa lýst yfir undrun sinni á úrskurði kjaradóms sem tekur gildi frá 1. janúar næstkomandi.

En hvað þýðir úrskurður kjaradóms? Samkvæmt úrskurðinum hækka laun forseta Íslands úr einni milljón fimm hundruð og þrjú þúsund níu hundruð sextíu og einni krónu í eina milljón sexhundruð tuttugu og sex þúsund sjöhundruð tuttugu og tvær krónur, eða um 8,2%. Laun forsætisráðherra og þingmanna hækka um 10,3%. Til samanburðar má sjá að laun þeirra lægst launuðu í landinu, ófaglærð verkafólks, hækka aðeins um 6,8% á árinu.

Allar tölurnar eru miðaðar við grunnlaun dagvinnu og er engin yfirvinna inn í þeim. Tölur um embættismenn eru byggðir á úrskurði kjaradóms en tölur um verkafólk eru byggðar á könnun kjararannsóknarnefndar og sýna meðallaun verkafólks. Kannanir ná hins vegar aðeins út árið 2004 og eru tölur fyrir árið 2005 áætlaðar út frá þróun launavísitölu og ákvörðunar kjarasamninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×