Hyggjast sniðganga kosningar 16. júní 2005 00:01
Íranar hyggjast margir hverjir sniðganga kosningar á morgun þar sem þeir vilja breytingar í landinu. Þeir eru hins vegar ekki sammála um hvaða breytingar. Hver sem verður kosinn, munu harðlínumenn eftir sem áður ráða mestu. Kosningabaráttunni í Íran er nú lokið en kosning hefst í fyrramálið. Kjósa á eftirmann Mohammeds Khatamis sem má ekki bjóða sig fram aftur. Kannanir benda til þess að Akbar Hashemi Rafsanjani, sem var forseti Írans á árunum 1987-1997, njóti mesta fylgisins af frambjóðendunum sjö, en hann þykir hófsamur klerkur. Talið er víst að efna þurfi til annarrar umferðar kosninganna til að einhver frambjóðandinn hljóti nægilegt fylgi. Það setur einnig strik í reikninginn að aðeins er búist við ríflega helmingskjörsókn. Ungt fólk, sem er um helmingur allra Írana, sýnir kosningunum lítinn áhuga. Algengt er að það líti svo á að umbætur fáist ekki fram með þeim hætti. Um 500 manns mótmæltu í Teheran í gær og hvöttu til þess að kosningarnar yrðu sniðgengnar. Ástæðurnar voru þó nokkuð ólíkar. Sumir sögðust mótmæla þar sem þeim líkaði ekki við klerkana í ríkisstjórninni og að þá langaði til að kjósa lýðræðislega ríkisstjórn. Aðrir ákölluðu Rafsanjani og bentu honum á hvernig komið væri fyrir landinu. Íranskar stúlkur væru fluttar yfir landamærin til Dúbaí án þess að nokkuð væri gert. Hver sem verður forseti verður þó ofurseldur varðaráðinu, en harðlínumennirnir þar eru í raun þeir sem ráða í Íran.
Erlent Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira