Sport

Klúðraði tveimur þjóðsöngum

Það er ekki tekið út með sældinni að syngja þjóðsöng á íþróttaviðburðum. Það fékk kanadíska söngkonan Caroline Marcil að sannreyna þegar hún var fengin til að syngja þjóðsöng Bandaríkjanna ásamt þeim kanadíska fyrir sýningarleik milli þjóðanna í íshokkí á föstudaginn í Quebec í Kanada.   Marcil gleymdi textanum við bandaríska þjóðsönginn og hljóp inn í búningsklefa til að ná í textann. Þegar hún kom tilbaka rann hún á rassinn á svellinu og eftir að hún hafði legið um stund, hálfringluð á svellinu, stóð hún upp og fór aftur í búningsklefa og lét ekki sjá sig aftur. Leikurinn fór því fram án þjóðsöngvanna tveggja en Bandaríkjamenn unnu leikinn, 5-4.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×