Halda enn í vonina um samþykkt 29. maí 2005 00:01
Stuðningsmenn stjórnarskrár Evrópusambandsins halda enn í vonina um að Frakkar samþykki hana í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag. Sáttmálinn á að sameina þjóðir en stefnir í að verða djúpstætt ágreiningsefni. Jacques Chirac, forseti Frakklands, tók daginn snemma, líkt og fjórðungur kjósenda sem greiddi atkvæði sitt, fyrir hádegi.Chirac hefur lagt allt í sölurnar til að sannfæra þjóðina um að samþykkja stjórnarskrána en sú bónarganga virðist litlu hafa skilað. Um 42 milljónir Frakka eru á kjörskrá og skoðanakannanir hafa sýnt að tæpur meirihluti þeirra segir nei, takk við stjórnarskánni. Sú niðurstaða gæti haft úrslitaþýðingu um framtíð skrárinnar en samþykki allra 25 aðildarríkja Evrópusambandsins þarf til að hún taki gildi. Níu aðildarríki hafa lagt blessun sína yfir hana. Spánverjar voru þeir einu sem gengu til þjóðaratkvæðagreiðslu en ákvörðunarvaldið var í höndum þjóðþinga átta sambandsríkja. Andstæðingar stjórnarskrárinnar halda því fram að hún geri út af við sérkenni aðildarríkjanna og hafi í för með sér óásættanlegt valdaframsal þeirra til stofnana Evrópusambandsins. Fylgjendur stjórnarskrárinnar segja sáttmálann, sem leiðtogar Evrópusambandsríkja skrifuðu undir í október síðastliðnum, auðvelda ákvörðunartöku innan sambandins, það fengi sinn þjóðhöfðingja sem talað gæti einni röddu fyrir hönd sambandsríkjanna og eflt áhrifavald þjóðinna á alþjóðavettvangi. Stuðningsmennirnir halda í það hálmstrá að þeir Frakkar sem voru óákveðnir í skoðanakönnunum, en það voru um fimmtungur kjósenda, hafi á síðustu stundu snúist á sveif með þeim. Það sama muni gerast í dag og gerðist í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þar sem Liverpool fór með óvæntan sigur af hólmi á lokamínútunum. Hvort svo verður kemur í ljós þegar atkvæði hafa verið talin, en búist er við fyrstu útgönguspá klukkan átta að íslenskum tíma. 66 prósent kjósenda höfðu greitt atkvæði klukkan fimm að íslenskum tíma. Kosningaþátttaka virðist vera öllu meiri en þegar franska þjóðin greiddi atkvæði um Maastricht-sáttmálann árið 1992. Þá var heildarþátttaka tæp 70 prósent.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira