Heidfeld á ráspól 29. maí 2005 00:01
Ökumenn Williams-liðsins voru í fantaformi þegar tímatakan fyrir kappaksturinn á Nurburgring fór fram í gær. Hraðast allra ók Nick Heidfeld og hann verður því á ráspól í fyrsta skipti á ferlinum í dag.Raikkonen keyrði aðeins hægar en Heidfeld og Íslandsvinurinn Mark Webber var með þriðja besta tímann. Michael Schumacher var í tómu tjóni í tímatökunni og hann er tíundi í rásröðinni. Félagi hans, Rubens Barrichello, er fyrir framan hann og er ljóst að Schumacher mun eiga erfitt uppdráttar í keppninni í dag en hann hefur ekki verið líkur sjálfum sér síðustu vikur. Þær breytingar áttu sér stað í gær að aðeins fór fram ein tímataka í stað tveggja en það fyrirkomulag hefur verið lagt af og ekki degi of seint að mati margra. „Þetta er frábær tilfinning enda er ég búinn að vera lengi í þessum bransa og það hlaut að koma að því að ég kæmist á ráspól," sagði Heidfeld skælbrosandi. „Af öllum stöðum þá er þetta brautin þar sem ég vildi allra mest komast á ráspól. Hér er mitt heimafólk og þetta hefur verið frábær dagur. Annars koma þessi úrslit mér á óvart en við Webber áttum von á meiri samkeppni hér í dag." Kimi Raikkonen hefur unnið síðustu tvær keppnir og hann ætlar að fullkomna þrennuna í dag. Hann leit vel út í tímatökunni í gær og er svo sannarlega til alls líklegur í keppni dagsins enda með sjálfstraustið í sögulegu hámarki. Fernando Alonso virðist síðan aðeins vera að gefa eftir en hann varð að sætta sig við sjötta besta tímann í gær.
Íþróttir Mest lesið Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Golf Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Sport Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Íslenski boltinn Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Sport Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Fótbolti Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski boltinn Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi Sport Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Enski boltinn Fleiri fréttir „Auðvitað skoraði Orri, hann skorar alls staðar“ FH leysir loks úr markmannsmálunum Orri Steinn með tvennu í Japan Sádarnir spenntir fyrir Antony Sjáðu stoðsendingar Öglu, hetjudáðir Fanndísar og Birgittu refsa grimmt Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Sjáðu glatað skot breytast í skallamark og Tryggva tryggja jafntefli Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Dagskráin: Fyrstu Bestu mörkin eftir EM, formúla, píla og golf Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi „Okkur fannst þetta ekkert öðruvísi en aðrir leikir” Þurfa að breyta leiðinni í Tour de France vegna smitfaraldurs Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Andrea Rán semur við FH Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-1 | Blikakonur unnu toppslaginn Uppgjör: Valur-FHL 2-1 | Fanndís hetja Valskvenna Uppgjörið: Vllaznia - Víkingur 2-1 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik hjá Víkingi Uppgjör: Tindastóll-Þór/KA 2-0 | Tindastóll byrjar vel eftir EM-frí Neymar reifst við áhorfenda eftir leik Hilmir Rafn fullkomnaði markaveislu Viking Uppgjörið: Kauno Zalgiris - Valur 1-1 | Ævintýralegt glópalán Valsmanna Sjá meira