Sport

Leo til Benfica

Benfica keypti í gær brasilíska varnarmanninn Leo frá Santos. Leo er þrítugur og fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Benfica í sumar. Hinir eru Brasilíumennirnir Anderson og Beto og Rússinn Karyaka. Hollendingurinn Ronald Koeman tók við knattspyrnustjórastöðunni af Giovanni Trappatoni en undir hans stjórn varð Benfica Portúgalsmeistari í fyrsta sinn í ellefu ár. Þá er ástralski landsliðsmaðurinn John Aloisi búinn að skrifa undir tveggja ára samning við spænska liðið Alaves. Hann lék áður með Osasuna. Aloisi skoraði fjögur mörk með ástralska landsliðinu í Álfukeppninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×