Sport

Nikulásarmótið í Ólafsfirði

Nikulásarmótið í fótbolta fer nú fram í 15. sinn í Ólafsfirði. Rúmlega 600 keppendur frá fimmtán félögum á aldrinum 6-12 ára taka þátt í mótinu sem hófst í gær og lýkur með verðlaunaafhendingu og mótsslitum klukkan 16.20 í dag. Í Ólafsfirði búa 950 manns og fótboltakapparnir ungu hafa því heldur betur sett svip sinn á bæjarlífið þessa helgina. Nikulás, sem mótið er kennt við, er félag sem skipshöfnin á Sigurbjörgu ÓF stofnaði fyrir 15 árum. Upphaflega var þetta stuðningsmannafélag Leifturs í Ólafsfirði en liðið var þá á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrvalsdeild karla. Í dag vegnar Leiftursmönnum ekki jafn vel en Nikulásarmenn einbeita sér að því að styrkja barna- og unglingastarfið í Ólafsfirði í staðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×