Jómfrúarferð stærstu þotu heims 27. apríl 2005 00:01
Stærsta farþegaþota heims, Airbus A380, hóf sig til flugs í fyrsta sinn á flugvellinum í Tolulouse í Frakklandi á níunda tímanum í morgun. Flugtakinu hafði verið frestað um u.þ.b. eina og hálfa klukkustund en ástæðan fyrir því hefur ekki verið gefin upp. Fjöldi fólks var saman kominn við flugvöllinn í Toulouse í Frakklandi til að fylgjast með þessum flugsögulega atburði. Smíði vélarinnar er samstarfsverkefni flugvélaiðnaðarins í Frakklandi, Bretlandi, Spáni og Þýskalandi og hafa stjórnvöld í löndunum styrkt framkvæmdina bæði leynt og ljóst. Vélin á að geta flutt á milli 550 til 800 farþega, allt eftir innréttingu og þjónustustigi, og tekur hún þar með fyrsta sætið af Boeing 747 sem hefur verið einráð á stórflugvélamarkaðnum í hátt í 40 ár. Ef farþegatalan er aðeins 550 verður pláss fyrir spilavíti, líkamsræktaraðstöðu og tollfría verslun, svo eitthvað sé nefnt. Ef allt tilraunaflug gengur að óskum verður vélin tekin í notkun á næsta ári og hafa u.þ.b. 150 vélar þegar verið pantaðar til flugfélaga um allan heim. Athygli vekur að ekkert af stóru bandarísku flugfélögunum og Brithis Airways, sem eru stærstu flugfélög heims og nota flest meðal annars minni gerðir, hafa pantað nýju breiðþotuna, hvað sem veldur.
Erlent Fréttir Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira