Réttarhöldunum frestað 27. apríl 2005 00:01
Dómsuppsögu yfir Mikhail Khodorkovsky, sem átti olíurisann Yukos, var frestað í Moskvu í morgun. Fréttaskýrendur segja þetta gert til að hlífa Pútín Rússlandsforseta við vandræðalegum fundum með vestrænum leiðtogum í næsta mánuði. Búist var við því að dómararnir í máli Khodorkovskys myndu greina frá niðurstöðu sinni í dag en í morgun var réttarhaldinu skyndilega frestað til 16. maí næstkomandi. Engin skýring var gefin á frestuninni og lögmönnum Khodorkovskys var ekki greint frá henni fyrir en nokkrum stundum síðar. Verjendurnir, sem og pólitískir andstæðingar Vladímírs Pútíns, segja ekki ólíklegt að skipun hafi borist frá Kreml um að réttarhaldinu yrði frestað. Þann 9. maí kemur fjöldi þjóðarleiðtoga til Moskvu og vilja andstæðingar Pútíns meina að dómurinn hefði orðið tilefni til uppþota. Því komi sér vel fyrir Pútín að engin niðurstaða verði fengin í málið fyrir þann tíma. Saksóknarar í málinu vilja að Khodorkovsky verði dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir skattaundanskot og svik en sérfræðingar telja allt eins líklegt að dómurinn verði nær tveimur árum. Pútín er þó sagður vilja að Khodorkovsky sitji inni í það minnsta til ársins 2008, þegar kjörtímabili Pútíns líkur. Olíurisinn Yukos, sem Khodorkovsky átti, var seldur upp í skuld á dularfullu uppboði á síðasta ári og er nú í raun orðinn ríkiseign. Herferðin á hendur Yukos og Khodorkovsky hefur meðal annars orði til þess að fjárfestar þora ekki að leggja fé í verkefni í Rússlandi af ótta við óútreiknanlega hegðan stjórnvalda.
Erlent Fréttir Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira