Alþjóðahús afhendir verðlaun 30. desember 2005 16:00
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir í dag kl. 15:30 í Alþjóðahúsinu, Jónu Hrönn Bolladóttur, Bjarna Karlssyni, Hope Knútsson, og Kramhúsinu viðurkenningu Alþjóðahúss fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi. Viðurkenningarnar eru veittar í þremur flokkum; einstaklingur af innlendum uppruna, einstaklingur af erlendum uppruna, og fyrirtæki eða stofnun. Viðurkenningarnar, sem nú eru veittar í þriðja skiptið, þjóna þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda. Þeir sem viðurkenninguna fá eru vel að henni komnir enda unnið frumkvöðlastarf á undanförnum árum í málefnum fjölmenningarlegs samfélags. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir og séra Bjarni Karlsson Séra Jóna Hrönn og séra Bjarni eru samhent hjón sem hafa unnið saman að því að bæta aðstæður innflytjenda og hafa verið óþreytandi við að leggja sitt af mörkum í því efni. Því hefur verið ákveðið að veita þeim einstaklingsviðurkenningu saman. Þau hafa verið öðrum fordæmi með því að tala opinberlega fyrir því að stuðla að samskiptum í anda fjölmenningar. Hjónin Jóna Hrönn og Bjarni hafa saman lyft grettistaki í uppbyggingu á unglingastarfi gegn fordómum, til að mynda með verkefninu „Adrenalín gegn rasisma", sem Jóna Hrönn hefur borið hitann og þungann af. Hope Knútsson Hope Knútsson flutti til Íslands frá Bandaríkjunum árið 1974. Hún hefur allar götur síðan verið frumkvöðull á mörgum sviðum félagsstarfs og komið mörgu til leiðar. Meðal þeirra félagasamtaka sem hafa notið frumkvæðis hennar og félagsstarfa eru Iðjuþjálfafélag Íslands, Geðhjálp, BHM, Siðmennt, SONI (Society of New Icelanders) og Fjölmenningarráð. Þá hefur Hope hefur komið fram opinberlega við ótalmörg tækifæri til að fjalla um málefni innflytjenda á Íslandi, gagnkvæma aðlögun, fjölmenningarsamfélag og aðra þætti sem skipta innflytjendur máli. Kramhúsið Hafdís Árnadóttir eigandi og framkvæmdastjóri Kramhússins og hennar alþjóðlega starfslið hefur með frumkvæði og krafti sett svip á fjölmenningarlíf í Reykjavík með kennslu og kynningu á dansi, tónlist og hreyfilist fyrir fólk á aldrinum 3 - 80 ára. Kramhúsið hefur dregið að til kennslu fjölmarga erlenda listamenn sem hafa auðgað mannlíf og skólalíf i borginni og víðar um landið með menningu sinni. Starfsmannastefna Kramhússins byggist á fjölbreytni og fjölmenningu og er öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira