800 þúsund börn týnast árlega 24. maí 2005 00:01
Tvö sakamál þar sem börn eru í aðalhlutverki hafa vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum og víðar. Í öðru málinu fannst barnið á lífi en því hafði verið misþyrmt en í hinu er tveggja systkina saknað eftir að nánustu ættingjum þeirra hafði verið banað. Hátt í átta hundruð þúsund bandarísk börn voru skráð týnd árið 1999. Á sunnudaginn var fannst átta ára gömul stúlka grafin undir grjóthrúgu í ruslagámi í bænum Lake Worth í Flórída. Það má teljast kraftaverk að hún fannst á lífi því lögreglumaður sá fyrir tilviljun glitta í fingurgóma hennar í hrúgunni. Í ljós kom að telpunni hafði verið nauðgað af unglingspilti sem hafði dvalið á heimili guðmóður hennar og hann síðan skilið hana eftir til að deyja. Þegar hún fannst var hún í furðu góðu ásigkomulagi þrátt fyrir eldraunina. Hún bað strax um að fá að hitta prest til að þakka Guði fyrir björgunina. Illvirkinn hefur verið handtekinn og hefur hann játað á sig sök. Í Idaho-ríki er nú gerð dauðaleit að systkinunum Dylan og Shasta Groene en þau eru aðeins átta og níu ára gömul. Þeirra hefur verið saknað síðan í byrjun síðustu viku en þá fundust móðir þeirra, bróðir og stjúpfaðir myrt á heimili þeirra í bænum Coeur D'Alene. Í fyrradag hétu yfirvöld rúmum sex milljónum íslenskra króna hverjum þeim til handa sem gæti veitt upplýsingar sem leiddu til að börnin fyndust á lífi en lögreglan hefur engar áreiðanlegar vísbendingar um hverjir kynnu að hafa rænt börnunum. Faðir barnanna er ekki grunaður um verknaðinn en hann hefur verið niðurbrotinn frá því að honum var tilkynnt um málið. Þótt þessi tvö mál hafi vakið sérstaka athygli þá eru slíkir harmleikir því miður ekki einsdæmi í Bandaríkjunum. Á árinu 1999 fékk lögreglan 797.500 tilkynningar um börn sem sögð voru týnd, þar af voru 58.200 þeirra numin á brott af fólki utan fjölskyldunnar. 115 börnum var rænt af mönnum sem taldir voru hættulegir barnaræningjar og til þeirra spurðist ekkert í afar langan tíma. Ekki kemur fram hversu mörg börn komu í leitirnar heil á húfi.
Erlent Fréttir Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira