Hátt í 100 á spítala vegna veiki 24. maí 2005 00:01
Þeir nálgast hundraðið, sem lagðir hafa verið inn á sjúkrahús í Noregi vegna gruns um hermannaveiki. Veikin sem blossaði upp í Fredrikstad er alvarlegasta tilfelli hennar á Norðurlöndum í mörg ár. Staðfest er að 33 sjúklinganna eru með hermannaveiki. Fimm eru látnir og átta manns er vart hugað líf. Norsk heilbrigðisyfirvöld vona að það versta sé afstaðið og að faraldurinn hafi náð hámarki sínu. Sjúkrahúsið í Fredrikstad er orðið yfirfullt og sjúklingar eru sendir til sjúkrahúsa í nágrannabæjum. Enn er ekkert vitað um smitsleið bakteríunnar. Líklegast var talið að hún væri loftræstikerfi einhverrar byggingar í Fredrikstad en eftir að ferðir sjúklinganna voru kortlagðar og sýni tekin úr loftræstikerfum finnst enginn samnefnari. Fólkið virðist hafa smitast á stóru svæði, svo stóru að líkur eru taldar á að smitleiðin sé í gegnum kæliturna sem blása lofti utandyra. Jafnvel er talið að bakterían hafi borist um loftrásir nokkurra bygginga. Reglur gilda um meðferð slíkra loftræstikerfa og komi í ljós að smit hafi borist um kerfi sem ekki var hirt um að hreinsa gæti eigandi byggingarinnar verið sóttur til saka. Þar til komist verður að upptökum sýkinnar hefur landlæknir í Noregi skorað á eldra fólk að halda sig fjarri verslunarmiðstöðvum í Fredrikstad og Sarpsborg. Þá hefur því einnig verið beint til foreldra að fara ekki með börn sín í verslunarmiðstöðvar.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira