Erlent

Sjö hermenn falla í Írak

Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. Ekkert lát er á árásum í landinu og var gærdagurinn einn sá blóðugasti í Írak í nærri ár. Ríflega hundrað Írakar hafa fallið eða særst í atlögum uppreisnarmanna frá því í gærmorgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×