Óttast að tvöfalt fleiri látist 24. maí 2005 00:01
Hermannaveikin, sem blossað hefur upp í Noregi á síðustu sólarhringum, er alvarlegasta tilfelli veikinnar á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast er að fjöldi látinna og veikra tvöfaldist á næstu dögum. 93 hafa lagst inn á Östfold-sjúkrahúsið í Fredrikstad vegna lungnakvilla, en á þau leggst hermannaveiki. Staðfest hefur verið að 29 sjúklinganna eru með sjúkdóminn. Þar af eru fimm látnir. Óttast er um líf átta sjúklinga til viðbótar en flestum þeirra er nú haldið í öndunarvél. Neyðarástand er að skapast á sjúkrahúsinu í Fredrikstad. Í morgun hafa sex manneskjur, sem grunur leikur á að hafi smitast af bakteríunni, verið lagðar inn. Gerðar hafa verið rástafanir um að flytja tuttugu sjúklinga til stofnana í nágrannabæjum í dag til að rýma fyrir nýsmituðum. Starfsfólk Östfold-sjúkrahússins segir að ef ekki dragi úr nýkomum muni þau einungis geta sinnt fólkinu næsta sólarhring. Þá verði sjúkrahúsið yfirfullt. Enn er ekkert vitað fyrir víst hver upptök smitsins eru þótt talið sé að bakterían hafi borist um loftræstikerfi. Það tekur að minnsta kosti þrjá daga að komast að því um hvaða byggingu ræðir og reynt er að kortleggja ferðir sjúklinganna til að finna einhvern samnefnara. Þar til komist verður að upptökum sýkingarinnar hefur landlæknir í Noregi skorað á eldra fólk að halda sig fjarri verslunarmiðstöðvum í Fredrikstad og Sarpsborg. Þá hefur því einnig verið beint til foreldra að fara ekki með börn sín í verslunarmiðstöðvar.
Erlent Fréttir Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Sjá meira