Sport

Hopkins boxar gegn Taylor í júlí

Bernard Hopkins mun boxa gegn Jermain Taylor þann 16. júlí næstkomandi. Hopkins er handhafi WBC, IBF, WBA og WBO beltanna í millivigt og verða þau öll undir í bardaganum. Hinn fertugi Hopkins, sem síðast barðist í febrúar er hann sigraði Howard Eastman á stigum, stefnir að því að hætta í byrjun næsta árs. Taylor, sem er 26 ára og ósigraður í 23 bardögum þar sem hann hefur meðal annars sigrað Daniel Edouard og William Joppy, er talinn gríðarlega góður boxari og fróðir menn segja hann þann eina sem ógnað getur Hopkins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×