Tónlistarmyndbönd hafi slæm áhrif á ímynd stúlkna 3. nóvember 2005 21:00
Tónlistarmyndbönd geta haft slæm áhrif á sjálfsímynd stúlkna. Þessi myndbönd sýna gjarnan tágrannar stelpur í flegnum fötum, en eins og kunnugt er þá hafa ekki allar stúlkur þessa líkamsbyggingu. Ímynd stúlkna var rædd á ráðstefnu uppeldis- og mannfræðinema. Draumalíkaminn er óraunhæf ímyndun en er samt notuð sem raunveruleg fyrirmynd. Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, nemi í uppeldis- og menntunarfræði, segir að í tónlistarmyndböndum séu líkamar yfirleitt mjög grannir og þar sé það látið líta þannig út að það skipti miklu máli að hafa draumalíkamslagið. Stelpurnar í myndböndum séu nettar, grannar og sæta og þær eigi það sameiginlegt að það sé ofsalega gaman hjá þeim. Ingunn Ásta segir menninguna líka ýta undir að þetta útlit sé eftirsóknarvert. Margir séu í heilsuátaki og það virðist skipta miklu máli að vera í formi. Hún telur að unglingar passi sérstaklega illa inn í mótið því þeir séu á mismunandi stað í þroska. Það sé mjög erfitt fyrir þá að upplifa það að þeir passi ekki inn í mótið. Ingunn segir öfgar gera heilsuna verri en ekki betri aðspurð um hvort það sé ekki að einhverju leyti ágættað stúlkur vilji vera grannar þegar horft er til þess að að fólk í hinum vestræna heimi er að þyngjast.Hún telur að í mörgum myndböndum sé verið að selja lög út á hreinan kynþokka og kynlíf og hún hugsi með sér hvað 11-12 ára stelpur sjái í þeim. Stúlkurnar í myndböndunum séu oft að selja líkama sinn einhverjum karlmanni og reyna að fá sínu framgengt með því að dilla bossanum fram í hann. En hvað um fötin sem fást á ungar stúlkur í verslunum og sumar fá að ganga í ? Ingunn segist hafa frétt af sjö ára stúlkum í G-strengsnærbuxum og hún hafi séð litlar stelpur í magabolum. Hún sé ekki á móti því að litlar stelpur séu í hlýrabolum í sumarhitanum en það sé óþarfi að gera út á það að kaupa föt sem feli í sér ákveðin skilaboð til þeirra sem eru í umhverfi stúlknanna. Ingunn segir óraunhæft að ætla að líkjast poppsöngkonum sem líti oft út eins og konur í erótískum myndum. Hægt sé að ræða við börn um skilaboðin í myndböndunum, um fötin og fá álit þeirra. Reyna eigi að hjálpa þeim að skilja þetta sé ekki raunveruleikinn þótt þau upplifi það þannig. Ýmislegt er hægt að gera til að sporna við áhrifum efnis sem gerir út á kynþokka. Til dæmis er hægt að banna börnum að hafa sjónvarpstæki í herbergjunum sínum svo þau geti ekki horft á sjónvarpið eftirlitslaus. Betra væri að fylgjast með því sem börnin horfa á og ræða innihald þess. Einnig er hægt að hvetja börn til að gera sér annað til skemmtunar en að horfa á sjónvarp.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira