Mæður og ömmur grétu 17. maí 2005 00:01
Mæður og ömmur grétu í dómsal í Suður-Ossetíu í dag þegar eini eftirlifandi tsjetsjenski skæruliðinn, sem gerði árás á grunnskólann í Beslan á síðasta ári, var leiddur fyrir dómara. 330 létust í árásinni, helmingurinn börn. Nur-Pashi Kulayev er tuttugu og fjögurra ára gamall. Hann var einn þeirra þrjátíu og þriggja skæruliða sem réðist inn í Beslan-skólann og sá eini sem lifði af. Kulayev hafði skriðið í felur þegar hersveitir gerðu áhlaup á skólann en íbúar í Beslan fundu hann og hefðu tekið lögin í sínar eigin hendur ef sérsveitarhermenn hefðu ekki komið honum til bjargar. Hann á nú yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Kulayev hefur játað að hafa tekið þátt í árásinni en segist engan hafa drepið. Hann segir að hópurinn hafi fengið þá skipun frá æðstu leiðtogum Tsjetsjena að koma af stað allsherjarborgarastríði. Ættingjar fórnarlambanna í Beslan, aðallega mæður og ömmur þeirra sem létust, fjölmenntu við réttarhöldin í dag og héldu á myndum af þeim sem létust. Margir hafa hins vegar krafist þess að fleiri en Kulayev verði dregnir til saka fyrir þetta hryðjuverk því ljóst þykir að sök liggur einnig að einhverju leyti hjá spilltum embættismönnum.Frá harmleiknum í Beslan sl. haust.MYND/AP
Erlent Fréttir Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira