Hugsanlega hættur að spila 12. apríl 2005 00:01
Það er óhætt að segja að það hafi verið í mörg horn að líta fyrir Keflvíkinginn Sverri Sverrisson í vetur. Hann lék lykilhlutverk í Íslandsmeistaraliði Keflavíkur og stýrði einnig kvennaliði félagsins til Íslandsmeistaratitils. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að síðasta tímabil hefði verið mjög strembið, þótt allt hafi gengið vel að lokum. "Þetta var mikið púsluspil og í raun ótrúlegt að þetta hafi gengið svona vel miðað við það að ég hafði engan aðstoðarþjálfara með kvennaliðið. Ég þurfti reyndar að fá Guðjón Skúlason til að taka tvær æfingar fyrir mig vegna Evrópukeppninnar en það var það eina. Þetta var mikið andlegt álag og ég veit ekki hvort ég hef áhuga á því að fara í gegnum annan svona vetur. Ég myndi í það minnsta vilja fá aðstoðarþjálfara," sagði Sverrir. Hann sagðist eiga von á því að hann myndi stýra kvennaliðinu á komandi tímabili. "Það hefur ekki verið skrifað undir neitt en stjórnin talaði við mig fyrir nokkru síðan og lýsti yfir áhuga á því að hafa mig áfram. Ég vil líka halda áfram enda stefni ég því að leggja þjálfun fyrir mig í framtíðinni." Sverrir lék mjög vel með Keflavík í vetur og var af flestum talinn vera besti varnarmaður deildarinnar. Hann sagði að eins og staðan væri í dag þá væri hann líklega hættur að spila. "Mér líður þannig í dag en það getur vel verið að ég fái fiðring í tærnar þegar nær dregur móti og ég byrji að spila á nýjan leik. Ég er hins vegar búinn að fá mig fullsaddan af körfubolta í bili og ætla að nota næstu vikur til að hvíla mig," sagði Sverrir Sverrisson, tvöfaldur Íslandsmeistari með Keflavík.
Körfubolti Mest lesið Hefur eignast barn en þarf samt að sanna það að hún sé kona Sport Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Fleiri fréttir Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Hefur eignast barn en þarf samt að sanna það að hún sé kona Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez NFL-stjarna dæmd fyrir þátt í hundaati Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Eir og Ísold mæta á EM Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Frank Mill er látinn „Sagt að mér gæti blætt út“ Sjá meira