Ólafur Páll er sá hættulegasti 9. júlí 2005 00:01
Hættulegasti sóknarmaður Landsbankadeildar karla í sumar er ekki annar af markahæstu mönnum deildarinnar, Tryggvi Guðmundsson eða Allan Borgvardt, né heldur Guðmundur Benediktsson sem er sá leikmaður sem hefur lagt upp flest mörk í fyrri umferðinni. Efstur á palli hvað varðar tíðni mili skapaðra marka er nefnilega 23 ára vængmaður úr toppliði FH. Ólafur Páll Snorrason kemur best út úr tölfræðinni og er marksæknasti leikmaður Landsbankadeildar karla miðað við spilatíma en mótið er nú rétt rúmlega hálfnað. Það líður minnstur tími milli skapaðra marka hjá honum en Ólafur Páll hefur fengið að taka þátt í 6 af 10 leikjum liðsins í sumar. Í þessum 6 leikjum hefur Ólafur Páll komið að sex mörkum, skorað tvö þeirra sjálfur og lagt upp önnur fjögur til viðbótar fyrir félaga sína í FH-liðinu. Ólafur er rétt á undan hinum fjölhæfa Fylkismanni Hrafnkeli Helgasyni sem hefur komið að fimm mörkum Árbæjarliðsins en hann hefur spilað í jafnlangan tíma og Ólafur. Hörð samkeppni um stöður Ástæða þess að Ólafur Páll hefur ekki spilað meira er fyrst og fremst gríðarlega hörð samkeppni um stöður í hinu öfluga og taplausa liði FH en Hrafnkell hefur hins vegar verið að glíma við erfið meiðsli sem hafa meðal annars kostað hann tvo síðustu leiki Fylkisliðsins. FH-ingar eru mjög áberandi á listanum og fjórir Hafnfirðingar eru meðal sex efstu manna. Í þriðja sætinu er annar leikmaður FH-liðsins sem er í svipaðri stöðu og Ólafur Páll. Atli Viðar Björnsson hefur átt þátt í fjórum mörkum á þeim 220 mínútum sem hann hefur spilað en það fer þó ekki framhjá neinum að mennirnir í 4. (Tryggvi) og 6. sæti (Borgvardt) á þessum lista eiga mikinn þátt í afrekum Ólafs Páls og Atla Viðars en enginn leikmaður Landsbankadeildarinnar hefur átt þátt í fleiri mörkum í sumar en einmitt þeir tveir. Allan hefur komið að 12 mörkum FH og Tryggvi einu færra en Tryggvi er sem stendur markahæsti leikmaður deildarinnar með 9 mörk. Ólafur Páll hefur nýtt sér það vel að Jón Þorgrímur Stefánsson meiddist í leik gegn Skagamönnum í 7. umferð en Jón Þorgrímur hefur verið fyrsti maður í stöðu hægri vængmanns í FH-liðinu síðustu árin. Ólafur Páll er hins vegar á sínu fyrsta ári í Hafnarfirði og hann hefur í kjölfar meiðsla Jóns Þorgríms byrjað tvo síðustu leiki FH-liðsins. Ólafur hefur í þeim leikjum skorað eitt mark og lagt upp annað fyrir félaga sína í framlínunni og báðir hafa leikirnir unnist eins og allir aðrir leikir FH-liðsins í Landsbankadeildinni í sumar. Var ekki hópnum í 3 leikjum Ólafur Páll kom inn á sem varamaður í þremur fyrstu leikjunum og lagði þá upp tvö mörk en var síðan ekki í hópnum í þremur leikjum í röð í síðasta mánuði. Ólafur Páll lét þó ekki deigan síga og hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í tveimur síðustu leikjum þar sem hann hefur í fyrsta sinn fengið að spreyta sig í byrjunarliðinu. Fæstar mínútur milli skapaðra marka í landsbankadeildinni:1. Ólafur Páll Snorrason, FH 40,0 mínútur (2 mörk skoruð og 4 undirbúin á 240 mínútum) 2. Hrafnkell Helgason, Fylki 48,0 (4 mörk skoruð og 1 undirbúið á 240 mínútum) 3. Atli Viðar Björnsson, FH 55,0 (1 mark skorað og 3 undirbúin á 220 mínútum) 4. Tryggvi Guðmundsson, FH 71,8 (9 mörk skoruð og 2 undirbúin á 790 mínútum) 5. Guðmundur Benediktsson, Val 72,3 (2 mörk skoruð og 8 undirbúin á 240 mínútum) 6. Allan Borgvardt, FH 71,8 (8 mörk skoruð og 4 undirbúin á 876 mínútum) 7. Stefán Örn Arnarsson, Keflavík 74,2 (3 mörk skoruð og 2 undirbúin á 371 mínútum) 8. Christian Christiansen, Fylki 73,3 (1 mark skorað og 2 undirbúin á 220 mínútum) 9. Björólfur Takefusa, Fylki 83,8 (5 mörk skoruð og 3 undirbúin á 670 mínútum) 10. Guðmundur Steinarsson, Keflavík 86,5 (5 mörk skoruð og 5 undirbúin á 865 mínútum)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Holland - Svíþjóð | Mikið undir í evrópskum slag Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Holland - Svíþjóð | Mikið undir í evrópskum slag Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Sjá meira