Sport

Prso hættir eftir HM 2006

Ísland mætir Króatíu í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu nk. laugardag og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Aðal markaskorari Króata, Dado Prso, framherji Glasgow Rangers, tilkynnti í blaðaviðtali að hann hygðist leggja skóna á hilluna eftir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi 2006. Prso, sem er þrítugur og hefur í tvígang verið valinn knattspyrnumaður ársins í Króatíu, segist hætta með landsliðinu til þess að minnka álagið þegar hyllir undir lok ferilsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×