Umhverfisráðherra setur skilyrði vegna framkvæmdanna 9. nóvember 2005 17:03 Ein tillagnanna um lagningu Sundabrautar sem inniheldur hábrú.
Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar og landfyllingar við Gufunes. Hann setur þó skilyrði vegna framkvæmdanna um samráð við íbúa Hamrahverfis og við hafnaryfirvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn. Í úrskurði sínum féllst Skipulagsstofnun á lagningu fyrsta áfanga Sundabrautar, sem liggur frá Sæbraut, yfir Kleppsvík, að Hallsvegi og Strandvegi, að settum tilteknum skilyrðum. Í matsskýrslu um framkvæmdina eru lagðir fram þrír kostir. Skipulagsstofnun fellst á þá alla að frátöldu því að hafnað var þeirri útfærslu á einni tillögunni að leggja Sundabraut á landfyllingum vestur fyrir Gufuneshöfða. Umhverfisráðherra bárust þrjár kærur vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar. Í úrskurði ráðherra segir að áhrif Sundabrautar á umhverfið séu ekki umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Hinn kærði úrskurður er því staðfestur að viðbættum tveimur skilyrðum: Annars vegar að framkvæmdaraðilar hafi samráð við fulltrúa íbúa Hamrahverfis um hönnun og útfærslu hljóðvarna, og leitast verði við að haga hljóðvörnum með þeim hætti að óæskileg umhverfisáhrif verði sem minnst. Hins vegar skuli framkvæmdaraðilar hafa samráð við hafnaryfirvöld og hagsmunaaðila í Sundahöfn við hönnun og nánari útfærslu þeirra umferðarmannvirkja sem kynnt eru í matsskýrslu og tengja hafnarsvæðið við Sæbraut og Sundabraut. Þá var það niðurstaða ráðherra að fyrirhugaðar landfyllingar við Gufunes myndu ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, en ein kæra barst vegna þeirrar framkvæmdar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Sjá meira