Vissu um mikilvægi marks Rikka 18. september 2005 00:01
Leikmenn Fram í Landsbankadeild karla voru meðvitaðir um það inni á vellinum að mark Ríkharðar Daðasonar lyfti liðinu tímabundið í 8. sætið í deildinni en með því minnkaði hann muninn í 4-1 gegn FH á Laugardalsvelli í gær. Hefðu það orðið úrslit leiksins hefði Fram náð að halda sér í deildinni á kostnað ÍBV á fleiri mörkum skoruðum en markatala Fram á þeirri stundu var að öðru leiti jöfn ÍBV sem þá var 1-0 undir gegn Fylki í Árbænum. Fram með markatöluna 19-31 en ÍBV með 18-30. En markið sem Tryggvi Guðmundsson skoraði og kom FH í 5-1 í viðbótartíma reyndist þó örlagavaldur Safamýrarliðsins og sendi það niður í 1. deild þrátt fyrir að vera með 17 stig eins og ÍBV. Ingvar Ólason leikmaður Fram segir leikmenn hafa verið meðvitaða um gang mála í Árbænum og hafi einbeitt sér að því að fá ekki á sig annað mark. "Það var frekar erfitt að vita ekki af því að við máttum ekki fá á okkur annað mark. Það var kallað til okkar úr öllum áttum, frá hliðarlínunni og ofan úr stúku þannig að við vissum að við máttum ekki fá á okkur annað mark." sagði Ingvar Ólason leikmaður Fram við Vísir.is nú síðdegis. Spennan á lokamínútunum í lokaumferðinni í gær var magnþrungin og það varð ekki ljóst fyrr en leiknum í Árbænum lauk að Fram væri fallið en þeim leik lauk síðast af leikjunum fimm. Leikmenn Fram stilltu sér margir fyrir framan sjónvarpsskjá á Laugardalsvellinum og fylgdust með gangi mála hjá Fylki og ÍBV. Hefði FH unnið 3-0 eins og staðan var um tíma þá hefði Fram haldið sæti sínu í deildinni þrátt fyrir að vera jafnt ÍBV að stigum og með hnífjafna markatölu. vegna betri úrslita í innbyrðisviðureignum liðanna. En Fram hefur nú barist við falldrauginn í lokaumferð efstu deildar sjö ár í röð og ljóst að liðið hafði ekki nema sex líf eftir allt saman. Nú eru nýjir tímar framundan í Safamýrinni og ljóst að liðið mun einbeita sér að því að koma sér upp aftur hið snarasta. Helgi Sigurðsson er sagður vera á leið til Fram frá Danmörku en aðspurður sagðist Ingvar ekkert vera farinn að huga að sinni framtíð hjá félaginu. "Samningurinn minn rennur út núna í haust en ég ætla ekkert að spá í þau mál fyrr en það gerist." sagði Ingvar en Fram á einn leik eftir af tímabilinu, gegn Val í úrslitaleik VISA bikarsins um næstu helgi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Fótbolti Fleiri fréttir Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Sjá meira