Innlent

Tjónið nemur milljónum

Veggjakrotið er löglegt en því virðist ekki hafa verið sinnt nægilega vel af hálfu borgaryfirvalda. Gunnlaugur A. Júlíusson, íbúi í Víkingshverfinu, hefur skoðað veggjakrotið í hverfinu og tekið af því myndir. Hann sendi í gær tölvubréf til borgarfulltrúa og fékk svar frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, oddvita sjálfstæðismanna. Vilhjálmur benti á að veggjakrotið væri vandamál í mörgum hverfum borgarinnar, til dæmis í miðbænum og Breiðholti. Hann kvaðst telja að borgaryfirvöld þyrftu að taka til sinna ráða og hugsanlega þurfi að herða viðurlögin. Einnig komi til greina að hafa meiri fræðslu í grunnskólum þannig að börn og unglingar fái upplýsingar um sóðaskapinn og kostnaðinn sem hlýst af veggjakrotinu. Sums staðar erlendis er veggjakrot lögbrot. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi telur hugsanlegt að slíkt komi til greina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×