Tímamótalyf gegn frunsum 1. júní 2005 00:01
Tímamótalyf gegn frunsum, fiskflakaskurður með vatnsskurði og orkustjórnunarkerfi sem leiðir til allt að fimmtán prósenta olíusparnaðar fiskiskipa eru meðal þeirra þrjátíu íslenskra verkefna sem hlutu styrki úr Tækniþróunarsjóði í dag. Þetta er í annað skipti sem Tækniþróunarsjóður úthlutar styrkjum til verkefna. Sjóðurinn hefur 340 milljónir til ráðstöfunar í ár og að þessu sinni voru 160 milljónir veittar til 30 verkefna en umsækjendur voru 70. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra sagði markmið Tækniþróunarsjóðs meðal annars að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og styðja tækniþróun og rannsóknir en langstærstur hluti þeirra verkefna sem sótt er um styrk fyrir kemur úr upplýsinga- og hugbúnaðargeiranum. Meðal þeirra sem hlutu styrk að þessu sinni voru fyrirtækin Líf-Hlaup og LipoMedica sem hafa undanfarin ár unnið að þróun lyfs gegn frunsum sem kann að marka tímamót. Lyfið inniheldur fituefni sem er virkt gegn mörgum veirum og bakteríum og sýklalyf sem hemur ensím sem valda bólgum og sárum. Þau frunsulyf sem nú eru í notkun byggjast á því að þau séu notuð strax í upphafi, þegar fólk finnur að það sé að fá frunsu, en þau virka ekki þegar hún er farin að vessa. Að sögn dr. Þórdísar Kristmundsdóttur, prófessors í lyfjafræði við Háskóla Íslands, á þetta lyf að gagnast, sama á hvaða stigi frunsan er. Fyrirtækið Skaginn á Akranesi fékk styrk fyrir vatnsskurðarbúnað til fiskvinnslu. Í stað þess að roðfletta og vinna fiskinn þá eru flökin kæld, þannig að þau fái nauðsynlegan stinnleika, og vatnsskurðartækninni síðan beitt til að flaka á sem hagkvæmastan hátt. Þannig verður nýtingin á flakinu betri, gæðin meiri og geymsluþol eykst. Fyrirtækið Marorka fékk styrk fyrir að þróa orkustjórnunar- og upplýsingakerfi fyrir fiskiskip, kerfi sem kallað er MAREN, en því er ætla að halda utan um alla rekstrarþætti veiðiskipa og tryggja að olíunotkun þess verði lágmörkuð. Frumgerðin verður sett um borð í nýtt skip í Clearwater í Kanada en rannsóknir hafa sýnt að reikna megi með 10 til 15 prósenta árlegum orkusparnaði skipa sem nota kerfið.
Fréttir Innlent Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Sjá meira