Sport

Markalaust hjá Djurgarden

Sölvi Geir Ottesen og Kári Árnason voru í liði Djurgarden sem gerði markalaust jafntefli við Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Djurgarden er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Malmö. Viking Stafangri og Brann gerðu markalaust jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Hannes Þ. Sigurðsson var í liði Viking og Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnson voru í vörninni hjá Brann. Brann er í 3. sæti með 17 stig en Viking er í 8. sæti með 15.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×