Ólympíuleikarnir 2012 í Lundúnum 6. júlí 2005 00:01
Ólympíuleikarnir verða haldnir í Lundúnum árið 2012. Þetta var tilkynnt í Singapúr fyrir nokkrum mínútum. Gríðarleg gleði braust út í miðborg Lundúna þar sem tugþúsundir manna höfðu safnast saman þegar Jaques Rogge, formaður Alþjóða ólympíunefndarinnar, kynnti niðurstöðuna. Hinar fjórar borgirnar sem sóttu um að fá að halda leikana voru París, Moskva, New York og Madríd. Talningin í morgun fór þannig fram að sú borg sem fékk fæst atkvæði í hverri umferð datt út. Moskva heltist fyrst úr lestinni um klukkan hálfellefu. Fljótlega í kjölfarið duttu New York og Madríd svo út svo að eftir stóðu París og Lundúnir. Fyrir klukkan ellefu var svo búið að velja borgina sem skyldi halda leikana en niðurstaðan var ekki kynnt fyrr en rétt í þessu. Ólympíuleikarnir hafa tvisvar sinnum farið fram í Lundúnum en það er orðið býsna langt síðan það gerðist síðast. Það var árið 1948 eða fyrir nærri sextíu árum. Þar á undan voru leikarnir haldnir í borginni árið 1908. Öllu var tjaldað til í baráttunni fyrir því að fá að halda leikana og undanfarna tvo daga hafa þjóðarleitogar og núverandi og fyrrverandi íþróttastjörnur streymt til Singapúr til að sannfæra Alþjóða ólympíunefndina um ágæti sinnar borgar. Englendingar lögðu mikla áherslu á að leikarnir yrðu haldnir þar og til marks um það voru Tony Blair og David Beckham sendir til Singapúr. Næstu Ólympíuleikar, sem haldnir verða eftir þrjú ár, fara fram í Peking í Kína.
Erlent Íþróttir Mest lesið Hrókeringar í markmannsmálum Man City Enski boltinn Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Íslenski boltinn Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Fótbolti Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Fótbolti Vélmennið leiðir Opna breska Golf Dagskráin í dag: Opna og sex stiga leikur á Akureyri Sport Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Fótbolti Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Fótbolti Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Enski boltinn Reyndi allt til að koma kúlunni niður Golf Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Opna og sex stiga leikur á Akureyri Hrókeringar í markmannsmálum Man City Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Vélmennið leiðir Opna breska Hófu titilvörnina á naumum sigri Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Reyndi allt til að koma kúlunni niður Madueke skrifar undir hjá Arsenal Goðsögnin sorgmædd yfir aðstöðunni Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Guðrún til Braga í Portúgal: „Nýr klettur í vörninni okkar“ Veiðimaðurinn leiðir á Opna breska Hörður tekur við starfi Arnars Guðjóns hjá KKÍ Fær átta milljarða frá tveimur félögum á tímabili þar sem hann spilar ekki leik Mbeumo gengur til liðs við Manchester United Sjáðu öll átta mörk Víkings og miðjumark Tryggva Arndís Diljá í úrslit á EM: „Ótrúlega gaman að hafa náð því“ Fimm íslenskir Evrópusigrar, sautján mörk í plús og met Blika og KR féll Mætti inn á með brúðkaupsmyndina á legghlífinni og breytti leiknum Nördarnir sem sigruðu Ísland: „Það fóru allir að hlæja“ Birnir Snær genginn til liðs við KA Hjálpaði til að vinna KR og var svo seldur Sló met Lennon og jafnaði met Atla Guðna Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Sjá meira