Sport

Loeb eykur forystu sýna

Heimsmeistarin Sebastien Loeb á Peugot hefur aukið forystu sýna í Nýja-Sjálands rallinu og hefur nú tæplega mínútu forskot á finnan Marcus Grönholm, sem er í öðru sæti. Franski ökuþórinn var með 23 sekúndna forystu í gær, en vann sigur á fjórum af sex sérleiðum í dag og hefur því mjög gott forskot, eða 51,9 sekúndur. Petter Solberg er í þriðja sætinu, sex sekúndum á eftir Grönholm. Á morgun verða eknar síðustu sex sérleiðirnar í rallinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×