Merkum áfanga náð 20. maí 2005 00:01
Suðurkóreskum vísindamönnum hefur tekist að rækta stofnfrumur sem passa fullkomlega við erfðaefni nokkurra sjúklinga. Uppgötvunin eykur vonir um að hægt verði að þróa lækningar á grunni stofnfrumuvísinda en henni fylgja þó alvarleg siðferðileg álitamál. Á síðustu árum hefur áhugi vísindamanna á stofnfrumum vaxið hröðum skrefum en stofnfrumur eru ósérhæfðar frumstæðar frumur sem geta bæði fjölgað sér og breyst í sérhæfðar frumur, til dæmis brisfrumur og lifrarfrumur. Ef fundin verður leið til að rækta stofnfrumur og stýra þróun þeirra í sérhæfðar frumur binda menn vonir við að hægt verði að lækna ýmiss konar áverka og sjúkdóma á borð við brunasár, sykursýki og Alzheimer. Uppgötvun Suður-Kóreumannanna þykir mikilvægur áfangi á þessari leið. Árangri sínum náðu þeir með því að taka erfðaefni úr sjúklingunum og koma því fyrir í eggfrumu sem erfðaefnið hafði verið tekið úr. Eggfruman varð síðan að örsmáum fósturvísi og úr honum voru teknar stofnfrumur sem innihéldu nákvæma eftirlíkingu af erfðaefni sjúklinganna. Enn er þó langt í land að hægt verði að nota uppgötvunina til lækninga. Næsta skref verður að þróa aðferð við að stýra sérhæfingu stofnfrumnanna til að taka á sig ákveðnar myndir. Þá tókst vísindamönnum við Newcastle-háskóla á Bretlandi að klóna fósturvísa í vikunni en slík vinnsla er nauðsynleg til að hægt sé að rækta stofnfrumur í einhverjum mæli. Þeir ítrekuðu hins vegar að á grundvelli þessarar tækni mætti aldrei rækta klónuðu fósturvísana áfram svo að þeir yrðu að fóstrum og síðan börnum. Andstæðingar stofnfrumurannsókna benda hins vegar á að þær séu siðferðislega óréttlætanlegar þar sem fósturvísir sé lífsform sem eigi möguleika á að þróast í manneskju. "Stór hluti mannkyns lítur svo á að við ræktun stofnfrumnanna hafi þurft að eyða mannslífum eða vísi að þeim," segir dr. Richard Nicholson, ritstjóri The Bulletin of Medical Ethics.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira