Afsögn verði stjórnarskrá felld 20. maí 2005 00:01
Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar í Frakklandi krefjast þess að hún segi af sér ef almenningur hafnar stjórnarskránni. Jean Claude Junker, forsætisráðherra Lúxemborgar og núverandi forseti Evrópusambandsins, segir að verði stjórnarskránni hafnað í Frakklandi verði ekki gerð tilraun til þess að endurgera hana og leggja hana fyrir dóm almennings í Evrópu með breyttu sniði. Hafni almenningur í Frakklandi stjórnarskránni þýði það einfaldlega að Evrópusambandið hafi færst tuttugu ár aftur í tímann og að Frakkar muni ekki lengur leiða Evrópu. Að hans mati myndi slík niðurstaða þýða endalok stjórnarskrárinnar. Aðeins níu dagar eru þangað til kosið verður um stjórnarskrána í Frakklandi og benda skoðanakannanir undanfarinna daga til þess að mjög mjótt verði á mununum. Þó hafa fimm skoðanakannanir í röð bent til þess að naumur meirihluti Frakka ætli að hafna stjórnarskránni. Jean Marie Le-Pen, leiðtogi þjóðernissinna í Frakkalandi, sagði í dag að það væri réttast af ríkisstjórn Jacques Chirac að segja af sér ef svo færi að þjóðin myndi hafna stjórnarskránni enda væri ekki hægt að túlka það öðruvísi en beina gagnrýni almennings á stefnu ríkisstjórnarinnar almennt. Neðri deild belgíska þingsins samþykkti stjórnarskrá Evrópusambandsins í dag með yfirgnæfandi meirihluta. Stjórnarskráin á þó enn eftir að velkjast aðeins um í stjórnkerfinu í Belgíu áður en hún verður endanlega samþykkt en það ætti að vera formsatriði. Ekki verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrána í Belgíu. Spánn, Ítalía, Grikkland, Ungverjaland, Litháen, Slóvakía og Slóvenía hafa þegar samþykkt stjórnarskrána en enn á eftir að greiða um hana atkvæði í sautján löndum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira