Erlent

Sögð hafa verið myrt

Óvissa ríkir um hvort ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sé lífs eða liðinn. Í gærmorgun var haft eftir Temur Shah, sem sagður er hafa rænt Cantoni, að hann hefði drepið hana þar sem ekki hefði verið gengið að kröfum hans. Síðdegis sagðist hins vegar Paul Barker, framkvæmdastjóri hjálparsamtakanna CARE í Afganistan, efast um að fréttirnar ættu við rök að styðjast. AP-fréttastofan hermdi svo að Shah hefði hringt og sagt að Cantoni væri aðeins lítillega særð. Cantoni var rænt á mánudaginn í Kabúl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×