Tekinn í sturtu og rekinn heim 20. maí 2005 00:01
Ríkisstjórnir Þýskalands og Tékklands eru æfar eftir að tveimur þingmönnum frá þessum löndum var vísað frá Kúbu í fyrradag fyrirvaralaust. Andstæðingar Kúbustjórnar stilltu saman strengi sína í gær, í fyrsta sinn í 46 ár. Þingmennirnir höfðu komið til eyjarinnar til viðræðna við þarlenda stjórnarandstæðinga. Tékkinn var í sturtu á hótelherbergi sínu þegar lögreglan ruddist inn og skipaði honum að taka næstu flugvél heim. Stjórnvöld í Berlín og Prag kölluðu sendiherra Kúbu á sinn fund í gær og kröfðu þá skýringa. "Það er sjálfsagður réttur þýskra og tékkneskra stjórnmálamanna að hitta kúbverska starfsbræður sína," sagði Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, í yfirlýsingu sinni um málið. Þrátt fyrir þetta héldu stjórnarandstæðingar sínu striki og veltu vöngum yfir hvernig koma mætti á lýðræðisumbótum í landinu. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir fá að halda slíka samkomu síðan kommúnistastjórn Castro tók við völdum fyrir 46 árum. "Hér eftir munum við tala um fyrir og eftir 20. maí," sagði Martha Beatriz Roque, forsvarsmaður ráðstefnugesta.
Erlent Fréttir Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira