Erlent

Saddam á nærbuxunum

Mynd af Saddam Hussein á nærbuxunum birtist á forsíðu breska æsifréttablaðsins Sun í morgun. Í blaðinu segir að menn innan bandaríska hersins hafi afhent blaðinu myndirnar í þeim tilgangi að draga kjarkinn úr uppreisnarmönnum í Írak. Í blaðinu eru einnig myndir af Saddam að handþvo þvott. Bandaríkjaher hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem myndirnar eru sagðar allt að ársgamlar og harmað að þær hafi verið teknar, enda kunni þær að fela í sér brot á Genfarsáttmálanum um réttindi fanga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×