Innlent

Ökumenn veðurtepptir í Hyrnunni

Töluvert af fólki var veðurteppt í Borgarnesi í gær að sögn Hildar Hallkelsdóttur vaktstjóra í Hyrnunni. Fullt var út að dyrum hjá þeim yfir daginn en fækkað hafi með kvöldinu þegar fólk leitaði sér gistingar í bænum. Hildur segir að nokkuð algengt hafi verið að fólk hafi veðurteppst í bænum á árunum 1991 til 1993 en síðustu ár hafi lítið verið um það. Hvasst var á Vesturlandi í gær eins og víðar á landinu og reyndi lögreglan í Borgarnesi að að beina fólki frá því að keyra leiðina milli Borgarnes og Hvalfjarðaganga. Björgunarsveitir frá Borgarnesi og Akranesi aðstoðaði fólk sem hafði lent í vandræðum. Óveður geysaði einnig á Hellisheiði í gær og var ferðaveður slæmt. Síðdegis í gær voru hjálparsveitir úr Grímsnesi og Hveragerði kallaðar út til að aðstoða ökumenn á heiðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×