Innlent

Ætla að kæfa niður Atlantsolíu

"Sú verðstefna sem samkeppnisaðilar okkar stunda núna hefur þann eina tilgang að kæfa niður Atlantsolíu," segir Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri Atlantsolíu. Hann heldur því fram að hin olíufélögin greiði með hverjum bensínlítra. Atlantsolía var með hæsta verð á bensíni í gær en bensínlítrinn kostaði 101,20 krónur hjá þeim á meðan algengt sjálfsafgreiðsluverð hjá Skeljungi, Olíufélaginu Esso og Olíuverslun Íslands var 98,60 krónur. Hugi vísar til þess að innkaupsverð á eldsneyti í Evrópu hafi hækkað að undanförnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×