Innlent

Ekkert ferðaveður á Snæfellsnesi

Ekkert ferðaveður er nú á Snæfellsnesi og í Borgarfirði og eru allir vegir ófærir. Mjög blint er í Borgarfirðinum og hvasst undir Hafnarfjalli. Lögreglan á Snæfellsnesi og í Borgarnesi varar fólk við að vera á ferðinni. Margir ökumenn á þessum slóðum hafa lent í vandræðum í dag. Á sunnanverðum Vestfjörðum eru vegir ófærir vegna veðurs og snjóa og Steingrímsfjarðarheiði er ófær. Á Norðurlandi er éljagangur og víða skafrenningur á vegum. Nokkuð greiðfært er um vegi á Austurlandi og Suðurlandi, þó er hálka í uppsveitum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×