Innlent

Útlægur og landlaus í fimm ár

Þrítugur útlendingur hefur undanfarna mánuði dvalið vegalaus í húsnæði Geðhjálpar í Reykjavík. Hann kom hingað til lands fyrir tæplega fimm árum sem pólitískur flóttamaður. Hann hefur einungis fengið tímabundið dvalarleyfi hér á landi, þar sem hann hefur ekki getað sannað hvaðan hann sé. Hann hefur ekkert ríkisfang. Hann segist vera "útlægur og landlaus." "Ég kom til Íslands til að biðja um hjálp," sagði Aslan Gilaev, þegar Fréttablaðið hitti hann í húsnæði Geðhjálpar í gær. Þar býr hann í einu herbergi uppi á efstu hæð og bíður þess sem verða vill. "Það sem ég fékk hér var erfiðasti tími lífs míns, miklu verri heldur en þar sem ég var áður. Ég er fangi á Íslandi," bætti hann við."Hér hafa verið brotnar á mér allar reglur, bæði íslenskar og alþjóðlegar, sem varða mannréttindi." Aslan kvaðst upphaflega hafa flúið frá Tsjetsjeníu árið 1995 til að bjarga lífi sínu. Hann kvaðst hafa dvalið víða í Evrópulöndum en aðstoðað þaðan vini og vandamenn við að komast burt frá Tsjetsjeníu. Hingað til lands kvaðst hann hafa komið í júní 2000. Í september sama ár kvæntist hann íslenskri konu. Hann sótti um dvalarleyfi í nóvember 2000, en var synjað, þar sem hann þótti ekki getað fært sönnur á að hann hefði komið frá Tsjetsjeníu. Hann fór í hungurverkfall til að þrýsta á íslensk stjórnvöld, en það reyndist árangurslaust. Hann fékk bráðabirgðadvalarleyfi, sem hann hefur endurnýjað þrisvar sinnum á þeim tæpu fimm árum sem hann hefur dvalið hér. Þrisvar hefur hann farið til annarra Norðurlanda til að leita þar hælis og komast þar með frá Íslandi, tvisvar til Svíþjóðar og einu sinni til Noregs. Þegar upp komst að hann hefði enga pappíra aðra heldur en bráðabirgðadvalarleyfi frá Íslandi var hann sendur til baka, þar sem Íslendingum bar að taka við honum samkvæmt alþjóðasamningum. Hann er nú skilinn við konu sína að borði og sæng, og bíður lögskilnaðar. Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar fór með Aslan í gær til að sækja nafnskírteini á Hagstofu Íslands. Þar er tilgreint nafn hans, kennitala, en ekkert ríkisfang. Sveinn sagðist jafnframt myndu óska eftir því við Útlendingastofnun að Aslan fengi ferðaskilríki. Sjálfur sagði Aslan að þessi langa barátta væri farin að setja mark sitt á hann. "Ég get ekki sofið á nóttunni," sagði hann. "Þetta er farið að hafa alvarleg áhrif á líðan mína, líkamlega og andlega. "



Fleiri fréttir

Sjá meira


×